Leita í fréttum mbl.is

Góður þessi

Það mætti nú alveg gera þetta við fleiri karlmenn sem skilja ekki nei!!  Mér finnst að hún ætti sko ekki að fá neinn dóm fyrir að gera þetta því að það þarf að kenna svona mönnum mannasiði

Ekki misskilja mig, það er til fullt af alveg frábærum karlmönnum sem eru mjög góðir og kurteisir og kunna að koma vel fram við kvenfólk. En ég hef persónulega reynslu af ógeðslegum perrum eins og þessum og veit alveg hvað er erfitt að losna við þá því þeir skilja ekki nei, því segi ég bara húrra fyrir þessari konu!!!!!!


mbl.is Kveikti í kynfærum drukkins Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef oft lent í konum sem að virðast ekki skilja nei heldur.

Nú bara um síðustu helgi lenti ég í einni sem einfaldlega virtist ekki skilja að ég hafði engan áhuga á henni. Hún kleip mig líklega þrisvar sinnum í rassinn á dansgólfinu þótt svo henni hafi mátt vera vel ljóst að ég hafði engan áhuga á henni strax eftir fyrsta þuklið.

Ekki nægði það þó, heldur ákvað hún einnig að skella sér í fangið á mér seinna um kvöldið, stakk höndunum inn á mig og hvíslaði svo að mér hvort ég vildi ekki fara heim með henni.

Hefðir þú hrópað húrra fyrir mér ef ég hefði við það tækifæri skvett áfengi yfir hárið á henni, rifið í næsta kveikjara og svo loks kveikt í áfengisvotu hárinu á henni?

Ef þú hefðir ekki hrópað húrra fyrir því, þá ert þú kvenremba af verstu sort.

Þú ert ansi grimm manneskja að hrópa húrra yfir svona löguðu. Maðurinn var djöfulsins raftur, en að kveikja í honum er enn viðbjóðslegra.

Ég?

Ég einfaldlega gafst upp og fór á næsta stað. Málið leyst án þess að alvarlega slasa nokkurn.

Bjössi

Björn (IP-tala skráð) 9.8.2009 kl. 20:29

2 Smámynd: Rannveig Jóhannsdóttir

já þú hefur reyndar rétt fyrir þér með það að það eru líka til konur sem eru óþolandi og láta karlmenn ekki í friði og þá oft sérstaklega gifta eða frátekna menn og mér finnst að sjálfsögðu að það megi taka þessar kerlingar í gegn líka. Mér finnst bara að fólk eigi að hætta þegar einhver vill ekki vera með viðkomandi!!!

En aftur á móti er mikið alvarlegra að vera að bera kynfæri sín og ota að einhverjum heldur en að klípa í rass, honum var andskotans nær að vera að bera sig. EF hann hefði aftur á móti verið í fötunum og ekki verið að ota tittlingnum að konunni þá hefði mér þótt þetta fullgróft, þá hefði maður látið nægja að gefa honum einn á hann eða grípa í klofið á honum og snúa uppá!!!!

Rannveig Jóhannsdóttir, 9.8.2009 kl. 20:42

3 identicon

Hún tróð nú reyndar höndunum inn á mig, eins og ég benti á áður, þó svo ég fari ekkert nánar út í það.

Væri það þá orðin næg ástæða fyrir mig til þess að kveikja í henni? Eða hefði hún þurft að flasha brjóstunum framan í mig til þess að ég mætti kveikja í henni? Ertu ef til vill með tvöfaldan standard eftir því hvort um karlmann eða kvenmann sé að ræða?

Veistu hvað, elskan, ég held að þú áttir þig alls ekki á því hversu miklu meira kvenmenn komast upp með hvað þukl og þreif á karlmönnum varðar heldur en karlmenn komast upp með hið gagnstæða.

Það versta er, þegar kvenmenn draga öfurölvi karlmenn heim með sér og gera það sem þær vilja með þá, þá er það yfirleitt álitið allt í lagi. Karlmennirnir jafnvel álitnir raftar, eða þaðan af verra. Það er meira að segja innrætt í karlmenn að það sé ekkert óeðlilegt. Treystu mér, ég hef lent í þessu og vinir mínir gerðu bara grín að því. Vinir mínir hafa líka lent í þessu, og ég gerði einfaldlega grín að þeim.

Það var ekki fyrr en ég var orðinn miklu eldri og kominn í sambúð að ég fór að velta þessu rugli frekar fyrir mér.

Þú veist vel hvernig á það er litið þegar karlmenn draga ofurölvi kvenmenn heim með sér.

Tvöfaldur standard, einföld, samþykkt kvenremba af verstu sort. Hún grasserar í þjóðfélaginu í dag.

Þú ert partur af vandamálinu, Rannveig. Þér finnst eðlilegt að kveikja í kynfærum karlmanns sem að berar sig fyrir framan konu, en þú veist jafn vel og ég að þér þætti það geðveiki ef ég hellti bensíni yfir og kveikti í brjóstum á konum sem að flöshuðu mig.

Þér þætti það kynferðisleg áreitni af verstu sort ef að karlmaður myndi allt í einu grípa þig í fangið á sér og troða höndunum inn á þig.

Ég?

Ég varð einfaldlega að ýta stúlkunni frá, standa upp og finna mér nýjan skemmtistað til að fara á. Ef ég hefði vælt undan þessu þá hefðu flestir líklega sagt að ég ætti að vera glaður með að 'fá smá action' upp úr þurru. Nei Rannveig, kvenmenn eru seint betri en karlmenn hvað kynferðislega áreitni varðar, og þær komast miklu, miklu frekar upp með það.

Miðað við þín skrif þá held ég að þú sért gjörsamlega blind gagnvart þeirri staðreynd.

Björn (IP-tala skráð) 10.8.2009 kl. 22:25

4 Smámynd: Rannveig Jóhannsdóttir

Jú ég veit alveg uppá hár að konur komast upp með meira heldur en karlmenn og ég þekki meira að segja eina stelpu sem kærði bandarískan karlmann fyrir nauðgun af því að hann vildi ekki sofa hjá henni og fékk vinkonu sína til að bera ljúgvitni fyrir sig og mér finnst þetta alveg hræðilegt og alls ekki eigi að eiga sér stað. Þú skalt ekki voga þér að fullyrða eitthvað um mig út frá því sem ég skrifaði því þú þekkir mig ekki neitt. Ég sagði alls ekki að það mætti ekki gera það sama við kvenmann sem myndi flassa þig með brjóstunum, mér fyndist það alveg vera í lagi að gera það sama við hana!!! Mér finnst bara ógeðslegt þegar fólk er að bera sig á almanna færi og ota því ofan í aðra, vinkona mín fór nú í brúðkaup um daginn og sá beint upp í klofið á einni konu sem sat uppi á handriði með gleiðar fætur í engum naríum. Þetta finnst mér líka að eigi alls ekki að eiga sér stað.

ÉG veit vel að konur hafa komist upp með kynferðislega áreitni af því að karlmaður sem lendir í slíku lendir í vandræðum ef hann myndi slá hana utan undir eða hrinda henni frá þá yrði hann tekinn í gegn fyrir það og jafnvel ætti hann á hættu að vera kærður fyrir kynferðislega áreitni.

Þú hefur verið að lesa eitthvað milli línanna sem er ekki þar ef þú heldur að ég sé blind á þetta , það er síður en svo rétt!!!

 Ég þekki líka karlmenn sem hafa lent í þessu og kannast við konur sem ganga um og reyna við allt með tippi!!! Bara til þess að gera þér grein fyrir því að ég er ekki með einhverjar ranghugmyndir um þetta þá get ég sagt þér dæmi af frænda mínum sem átti virkilega andstyggilega konu sem laug uppá hann að hann hefði kynferðislega misnotað dóttur þeirra þegar þau skildu til þess að hann fengi ekki að hitta hana!! Þannig að ég veit alveg að konur geta verið alger kvikindi og þessvegna finnst mér oft skemmtilegra að vinna með karlmönnum heldur en konum því að þeir eru ekki í einhverri samkeppni við mann!!! En ég  þekki líka stelpur sem hefur verið nauðgað af karlmönnum og þessvegna stend ég við þá skoðun mína að þeir/þær sem bera sig og ota kynfærum sínum að öðrum eigi skilið það sem þeir/þær fái í staðinn

Rannveig Jóhannsdóttir, 11.8.2009 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Jóhannsdóttir
Rannveig Jóhannsdóttir
Ég er eldhress kennari og með karl og börn í eftirdragi. Mig langaði alltaf að verða bakari en nennti ekki að vakna snemma á morgnanna, svo nú er ég að vinna sem leiðbeinandi í grunnskóla og ætla að ná mér í kennsluréttindi.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband